fimmtudagur

aðeins

að stríða - eruð þið að fá meldingu?

miðvikudagur

þriðjudagur

Lopapeysa dauðans

er tilbúin. Hún var mössuð á viku.

mánudagur

Húsfreyjublogg, þriðji hluti

Já nú er frúin að slá í gegn hjá sjálfri sér. Búin að fá lánaða saumavél og ætlar að fara að sauma mei tai og sængurföt og áfram mætti telja. Einnig fékk hún lánaða prjóna og ullarpeysuuppskriftir. Þeir verða fínir í vetur feðgarnir. Ég prjóna svo á sjálfa mig á elliheimilinu.

Skírnin vex með barninu. Upphaflega áttu að vera vottarnir og barnið, nú er ég að berjast við að þurfa ekki að leigja sal. Bjóðum til pabba í kaffi svo fólk verður bara að setjast út. Ekki það að ég haldi að það verði mikil ásókn í þessa formsatriðisathöfn, kannski meira að fólk vill vera boðið.

Það skiptir máli hvorum megin við borðið maður situr. Nú vill Stuart fá gervihnattadisk (ekki seinna en í gær), bíl og helst vera ekki styttra en viku þegar við förum til Skotlands í september. Ég lét mér duga BBC, bíl eftir að hafa búið þarna í 5 ár og ég fór 2svar á ári í langa helgi og 2svar í 2ja vikna ferðir. Einnig held ég að hann sé að áforma innflutning á skosku beikoni og pulsum. Enda er manninum mikil vorkunn að þurfa að sætta sig við íslenska matinn.

laugardagur

Móðir

hans Alexanders (alltof oft vísað í mig með þessu nafni) er snillingur. Famous last words og allt það en hlutirnir eru að ganga vel með að ýta drengnum uppí hans rúm.

föstudagur

Húsfreyjublogg, annar hluti

Hvernig stendur á því að maður gengur ekki meira? Við Alexander fengum okkur göngutúr áðan til hennar Kolbrúnar. Hún býr í Barmahlíð og er þetta því bara fín vegalengd. Hef nokkrum sinnum fengið mér svona skokk síðan ég kem heim og hef verið að dásama þetta í huganum þegar heim er komið, hvað það sé nú frábært að fá sér smá hreyfingu. Svo situr maður dag eftir dag á rassgatinu og hugsar um hvað það væri nú sniðugt að skella sér í smá göngutúr. Nú er heragi á svefntíma litla mannsins og reynt er sömuleiðis að losa hann aðeins undan brjóstinu. Við erum búin að fara út í labb 2svar á dag þessa viku og erum sko ekki að sjá eftir því.

Ein skýringin á framtaksseminni er kannski líka að við erum búin að vera bíllaus:/

mánudagur

7 á árinu

og geri aðrir betur. Mér telst svo til að óléttufaraldurinn sem hefur geisað undanfarið gefi af sér 7 börn og þar er Alexander ekki meðtalinn. Það eru 5 komin og 2 eftir. Þetta er þá það fólk sem stendur mér hvað næst, ég geri mér grein fyrir því að það fæðast börn daglega útum allan heim :) :) Shii hvað það verður mikið stuð á næstu árum...

föstudagur

Húsfreyjublogg, fyrsti hluti

Bjartsýni er þegar maður fréttir af skírn litla frænda síns og segir það ekkert mál að vippa fram þremur frönskum súkkulaðikökum. Aðeins meira mál þegar það tekst ekki í fyrstu og annari og það þarf að versla allt inn aftur ásamt því að sjá um ofvirkt barn sem þykist ekkert hafa við svefn að gera en vill helst að mamma sé hjá honum eiginlega alltaf. Svo kemur að því að hann skammast sín fyrir mömmu sína og vill helst að hún labbi hinum megin við götuna.

He he

maður verður nú að hlæja að sjálfum sér. Hápunktur dagsins hingað til er að ég fór í Krónuna og keypti ódýran kjúkling og fékk Huggies rassaþurrkur. Var búin að gera dauðaleit að þessari eðalvöru. Það er einhver furðuleg gleði innra með mér sem ég get bara rakið til þessara megainnkaupa.

mánudagur

Munnræpa

Þar sem ég hef í gegnum árin ekki þjáðst af munnræpuþurrki þá angrar þetta ástand mig. Ég nenni ekki einu sinni að ræða afrek litla mannsinsog finnst mér þá ástandið vera orðið slæmt. Jú, ég horfði á skemmtilega mynd um daginn, las einnig skemmtilega bók, hef hitt fullt af skemmtilegu fólki, lenti ekki í umferðateppu á sunnudaginn, þetta er skelfingarástand í Glasgow, hvurskonar veðurblíða er þetta eiginlega, bla.

miðvikudagur

Systir mín

hringdi í mig í morgun af fæðingardeildinni rétt eftir að það var búið að tjasla henni saman. Hún er bolti, hún systir mín.

Það fæðast bara ekki börn í fjölskyldunni þessa dagana undir 15 mörkum. Það er ekki spaug að giftast inní þessa fjölskyldu. Það fara sögur af einu sem var 22 merkur, ef ekki 24. Eins og hægt er að ímynda sér þá var þetta síðasta barn konunnar.

þriðjudagur

Er alveg á leiðinni

að fara að blogga meira. Nú er karlinn farinn að vinna og ég sé fram á að komast aðeins að tölvunni. Lillimann er að skána af kvefinu en á móti kemur að amman er farin á spítala með lungnabólgu. Svona gengur þetta fyrir sig.

föstudagur

Er að taka til

í kytru hugans þessa dagana ásamt því sem ég tek til í íbúðinni. Alveg ótrúlegt hvað safnast saman af drasli á stuttum tíma. Dót sem ég tók með mér út og svo það sem ég hef sankað að mér. Þetta er allt mjög þerapjútískt, maður hendir út ýmsum neikvæðum minningum og tilfinningum sem hafa gleymst í einhverju horninu.

mánudagur

Miðinn keyptur

með góðra konu hjálp. Komum heim 15 maí.

þriðjudagur

Tæpur mánuður til stefnu

og ég hef ekki gert rassgat. Þannig. Við erum búin að finna leigjendur, frænku mágs Stuarts. Þó það séu oft vandamál við að leigja ættingjum að þá held ég að í þessu tilviki eigi það eftir að borga sig. Leigan nær ekki uppí afborgun enda erum við með aukalán en það munar ekki miklu og við getum skilið eftir öll húsgögn og alla þá lausa muni sem við viljum. Svo setjum við restina í geymslu til foreldra Stuarts. Það er ennþá planið að setja á bretti hluti eins og rúmið hans Alexanders og svona en eins og málin standa þá virðist það ekki vera neitt rosa mikið. Enda erum við að fara í fullbúna íbúð á Íslandi (espressó vélin kemur pottþétt með).

Það er bara ágætis fílingur í okkur hjónunum. Hann er eðlilega nervus um það hvort hann fái vinnu eða ekki en það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn.

Ég er orðinn snillingur með gufusoðið grænmeti og get svarið það að það er sama hvað drengnum er boðið, hann étur það. Undantekning er óþroskað mangó og kartöflur. Það er reyndar langt síðan hann fékk kartöflu (hann ældi henni) en ég ætla ekki að prófa strax aftur. Hann þarf ekki nauðsynlega að fá kartöflu strax. Sætu kartöfluna elskar hann. Þetta ferli allt saman hefur reynst mér gott. Nú fær Alexander sér ávexti í hádeginu og það sem hann klárar ekki það set ég í blandarann og nota í smoothie.
Alexander blómstrar sem fyrr, hann er ekki enn farinn að velta sér á hliðina þegar hann er á gólfinu en gerir það þegar við erum uppí rúmi og hann sér brjóstið. Þá verður æsingurinn stundum svo mikill að hann fer aðeins of langt. En hann er aktívur, kraftmikill og þetta kemur bara með hans hraða...
Fínhreyfingarnar eru fínar, hann vippir af sér höttum og sokkum eins og ekkert sé. Hann vill helst vera í gúmmí hringnum með allt dótið sitt í kringum sig og eftir svona 5 mínútur þá er allt komið uppúr hringnum og um allt gólf. Svo skrækir hann þangað til mamma er búin að veiða allt uppí hringinn aftur. Já, drengurinn er með skap eftir allt saman. Ekki hélt ég að sonur minn væri skaplaus en átti kannski alveg von á þessu. Hann ákvað það um daginn að snuddur væru verkfæri djöfulsins og að þumallinn virkaði ekki heldur en brjóstið væri það eina sem hugsanlega gæti komið honum í svefn. Nota bene að þá var hann fínn fram að þessu, fékk að drekka fyrir svefn en sofnaði sjálfur. Nú öskrar hann þegar hann sér pabba sinn inní svefnherbergi og hættir ekki fyrr en mamma kemur inn. Þetta er ss verkefni næstu vikna :) Mér leiðist þá ekki á meðan ha?

Fermingar

Tvær af vinkonum mínum eru að fara að ferma og ég kemst í hvoruga veisluna. Illa skipulagt því bestu veitingarnar er jú oftast að finna í slíkum veislum. Ætti að bæta mér þetta upp einhvern veginn...

föstudagur

Uppsögn

Já, er að fara í vinnuna á eftir til að segja upp. Verður ekki aftur snúið eftir það :) :) Jamm jamm, nú erum við að tala við leigumiðlanir, ákveða hvað á að taka með sér í næstu ferð miðað við hvað er hagstætt að setja í skipið og hvað á að skilja eftir. Þetta fer bara að verða spennandi, hélt að ekkert gæti toppað nýja bílstólinn hans Alexanders en þetta jaðrar við að vera meira spennandi - ha?

þriðjudagur

Heimför

Held ég skelli mér bara á klakann í næstu viku. Þriðjudag til þriðjudags....? Ha?

sunnudagur

You´re in the cowhouse now

Jamms, Alexander hefur átt í vandræðum með að drekka undanfarið. Ég þurfti því að grípa til úrþrifaráða. Held ég sé að fá wankers wrist.

Ég er að jafna mig á tengdaforeldrunum. Var búin að semja sniðug tilsvör til að skjóta að kallinum en þá náttúrlega heyrðist ekkert í honum en hún vildi þá endilega fara að bjóða honum formkökur. Átti ekkert svar svo ég leit bara útum gluggann.

Þetta eru eiginlega hápunktar síðustu viku. Ég hef verið að leita að disk fyrir Alexander og fann hann, fundum sundbuxur fyrir drenginn líka og svo hef ég verið að leita að fæðingargjöfum og fötum á Alexander. Já, ég lifi flóknu og krefjandi lífi þessa dagana. Ég er að spá í að baka fyrir bolludaginn og svo þarf að þrífa gluggana aftur :) :)

Elva systir og maðurinn hennar koma á fimmtudaginn. Við stöllurnar erum búnar að missa okkur nú þegar í barnafatageðveikinni. Við erum hvorugar stöðugar fyrir og held ég að þetta allt saman hafi ýtt okkur yfir brúnina. Vona að ég verði orðin viðræðubetri þegar pabbi og Hrund koma hingað í apríl. Get kannski gefið þeim upplýsingar um hvernig er best að sjóða gulrætur...????

fimmtudagur

Pirringur gærdagsins

Fór í Ikea með tengdaforeldrunum. Eins og það sé ekki nógu slæmt þá baular í afanum í hvert skipti sem ég talaði við strákinn: "Hann skilur þig ekki".
Veistu, mér finnst þetta í besta falli vera dónaskapur.