þriðjudagur
föstudagur
Uppsögn
Já, er að fara í vinnuna á eftir til að segja upp. Verður ekki aftur snúið eftir það :) :) Jamm jamm, nú erum við að tala við leigumiðlanir, ákveða hvað á að taka með sér í næstu ferð miðað við hvað er hagstætt að setja í skipið og hvað á að skilja eftir. Þetta fer bara að verða spennandi, hélt að ekkert gæti toppað nýja bílstólinn hans Alexanders en þetta jaðrar við að vera meira spennandi - ha?
þriðjudagur
sunnudagur
You´re in the cowhouse now
Jamms, Alexander hefur átt í vandræðum með að drekka undanfarið. Ég þurfti því að grípa til úrþrifaráða. Held ég sé að fá wankers wrist.
Ég er að jafna mig á tengdaforeldrunum. Var búin að semja sniðug tilsvör til að skjóta að kallinum en þá náttúrlega heyrðist ekkert í honum en hún vildi þá endilega fara að bjóða honum formkökur. Átti ekkert svar svo ég leit bara útum gluggann.
Þetta eru eiginlega hápunktar síðustu viku. Ég hef verið að leita að disk fyrir Alexander og fann hann, fundum sundbuxur fyrir drenginn líka og svo hef ég verið að leita að fæðingargjöfum og fötum á Alexander. Já, ég lifi flóknu og krefjandi lífi þessa dagana. Ég er að spá í að baka fyrir bolludaginn og svo þarf að þrífa gluggana aftur :) :)
Elva systir og maðurinn hennar koma á fimmtudaginn. Við stöllurnar erum búnar að missa okkur nú þegar í barnafatageðveikinni. Við erum hvorugar stöðugar fyrir og held ég að þetta allt saman hafi ýtt okkur yfir brúnina. Vona að ég verði orðin viðræðubetri þegar pabbi og Hrund koma hingað í apríl. Get kannski gefið þeim upplýsingar um hvernig er best að sjóða gulrætur...????

fimmtudagur
Pirringur gærdagsins
Fór í Ikea með tengdaforeldrunum. Eins og það sé ekki nógu slæmt þá baular í afanum í hvert skipti sem ég talaði við strákinn: "Hann skilur þig ekki".
Veistu, mér finnst þetta í besta falli vera dónaskapur.
Veistu, mér finnst þetta í besta falli vera dónaskapur.
miðvikudagur
laugardagur
Hugað að heimferð
Nú er litla fjölskyldan farin að huga að heimferð. Aðeins rúmir 3 mánuðir þangað til við flytjum. Við Alexander komum nú í millitíðinni til að slaka á og undirbúa aðeins. Fullt að gera sosum en vona að við getum verið allavega 2 vikur. Stuart er eðlilega með smá hjartslátt útaf þessu öllu en hann hefur tekið þá ákvörðun að láta reyna á þetta svo hann skiptir ekki um skoðun úr þessu. Hann segir fjölskyldu sinni frá þessu núna um helgina. Má því búast við að það blási köldu í mína átt næstu vikur.
sunnudagur
Litli prinsinn
Fór til Glasgow á föstudaginn, Trina vinkona var að hætta hjá bankanum og ég ákvað að nota tækifærið og kíkja á hinar stelpurnar. Hitti liðið á TGI og eftir að stelpurnar voru búnar að jafna sig á Alexander þá tók þögnin við. Ég hef akkúrat ekkert að segja utan þess að ræða litla manninn. Ég hef séð þetta gerast og átti von á því að það sama myndi henda mig en það er ekki þægilegt að sitja og horfa útí loftið og reyna að hugsa upp eitthvað að segja sem tengist ekki Alexander og það kemur ekkert, núll, nix. Hápunktur síðustu viku hjá mér var að ég tók til í skúffunum hans og færði hann upp um stærð. Gæti talað útí það óendanlega um það mikla afrek.
föstudagur
Hlé í bili
Jú, það er rétt, hef ekki heyrt af neinni óléttu nýlega. Síðasta fæðingin er áætluð þann 23 júní. Shit hvað næstu jól verða dýr :) :)
Ekki það að mér leiðist í mömmuhlutverkinu en það er komið að því að ég er farin að baka...
Ekki það að mér leiðist í mömmuhlutverkinu en það er komið að því að ég er farin að baka...
miðvikudagur
mánudagur
miðvikudagur
Fæðing yfirstaðin og hvað svo?
Já hvað getur maður skrifað um á þessu bloggi? Allt sem ég geri er í þágu litla mannsins og helstu vandamál dagsins er hvort maður mjólki nóg. Stærri er heimurinn hjá mér ekki í augnablikinu. Er ss dottin í bleiupakkann ógurlega. Ég gæti valið mér grein úr morgunblaðinu og látið sem mér standi ekki á sama en þar sem mér stendur meira en á sama þá læt ég það ógert. Þetta nýja hlutverk mitt er erfitt en maður þarf ekki annað en að líta á litla herramanninn til að flissa og það bætir upp fyrir allt svefnleysi og maga sem hoppar hæð sína í hvert skipti sem maður labbar. Enda er þetta ofurbarn sem nú þegar er farið að sýna foreldrunum hver ræður.
Já, er því ansi hrædd um að það eina sem verði bloggað hér á næstunni verði lofrullur um undraverðan þroska erfðaprinsins og kosti og galla brjóstahaldarainnleggs. Fyrir þá sem ekki hafa áhuga á slíkum umræðum segi ég bara úff en leiðinlegt. Á von á því að koma upp eftir lofti þegar nær dregur heimferð.

Þreytt en sæl
Litla prinsessan (maður getur nú ekki alltaf haft rétt fyrir sér) kom í heiminn þann 25 - sem sannar það reyndar að stundum hefur maður rétt fyrir sér :)
Ég ætla að byrja á því að þakka allar kveðjurnar og biðja þá afsökunar sem ekki fengu tilkynningu, eða fengu tilkynningu á röngum tíma, og jú, þá sem ekki fengu e-mail og myndir. Skipulagið hjá okkur hjónunum var nefnilega svona gífurlegt að það vantaði helminginn uppá.
Ég ætla að vera trú sjálfri mér og opna ekki barnalandssíðu en hef hinsvegar ákveðið að pósta upp myndir af erfingjanum á bloggsíðu. alexanderemil.blogspot.com. Ætla að reyna að standast freistinguna að monta mig of mikið en lofa engu því að sjálfsögðu er þetta ofurbarn sem getur allt miklu betur en næsti stubbur (hefur náttúrlega 3ja mánaða forskot litli hlunkurinn). Getið prófað að kíkja inn eftir helgi, ætla að vera dugleg að tölvast og að taka myndir um helgina...

Og svo að lokum
þá er ég með annað ferskt leyndarmál. Hin eru reyndar orðin opinber svo það er bara þetta í gangi núna. Frjósemin í kringum mig er ekki alveg eðlileg, minnir á beljurnar - um leið og ein byrjar að pissa þá þurfa þær allar.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)